Jarðfræði

32.500 kr.

Jarðfræðsaga Íslands er tiltölulega stutt miðað við aldur jarðarinnar.  Einstakt tækifæri gefst til að kenna jarðfræði á Íslandi þar sem hin innri öfl jarðarinnar eru bersýnileg í umhverfinu. Á námskeiðinu er farið yfir myndun og mótun landsins með skapandi hætti og farið í vettvangsferð til að skoða jarðfræðileg fyrirbæri.

Námsmarkmið:

Að efla umhverfislæsi nemenda og gefa þeim tækifæri að læra í gegnum reynslu.  

Hæfniviðmið aðalnámskrár:

Að nemandi

  • geti skráð atburði og athuganir
  • tekið eftir og rætt atriði í umhverfi sínu
  • framkvæmt og útskýrt athuganir úti
  • tekið þátt í náttúrufræðilegum verkefnum og kynnt niðurstöður
  • tekið eftir og rætt atriði í umhverfi sínu
  • sýnt félögum og náttúru alúð
  • lýst reynslu sinni, athugun og upplifum af lífverum í náttúrulegu umhverfi

 

Vöruflokkur:
Nánari lýsing

Jarðfræði

Á námskeiðinu er kennurum kynntar skapandi leiðir til að nýta sér upplifunar og útinám í náttúrufræði. Unnið að dýpkun þekkingar á hinum innri og ýtri öflum jarðar í gegnum listræna vinnu. Farið verður í vettvangsferð í nágrenninu til að æfa greiningu á jarðfræðilegum fyrirbærum. Einfaldar rannsóknir eru framkvæmdar sem hægt er að aðlaga að mismunandi aldurstigum grunnskólans.

Lágmark 3 þátttakendur.

Námskeiðið fer fram að Álafossvegi 31 í Mosfellbæ. Fyrri hluti er haldinn inni en í síðari hluta er farið í vettvangsferð.  Námskeiðið stendur yfir í 3 klst. Ítarefni fylgir.

Möguleiki er á að panta sérsniðið námskeið sem tekur tillit til nærumhverfi skóla.

Þátttakendur þurfa að hafa eftirfarandi með sér á námskeiðið:

  • Klæðnað eftir veðri
  • Vatnsbrúsa
  • Litblýanta og önnur skriffæri
  • Kíki

Náttúruspeki er hér

Bílastæði eru staðsett fyrir ofan hús. Strætisvagn númer 7 stoppar við Álafossveg.

Álafossvegi 31, 270 Mos
Gsm: 6990808