Útinám í stærðfræði

26.500 kr.

Orðaforði í stærðfræði skiptir meginmáli í skólagöngu ungra nemenda. Á námskeiðinu fá kennarar að kynnast ólíkum leiðum til að dýpka hugtakaskilning nemenda sinna í stærðfræði í gegnum rannsóknir og leik. 

Vöruflokkur:
Nánari lýsing

Á námskeiðinu er kennurum kynntar útikennsluaðferðir í stærðfræði. Þátttakendur fá tækifæri til að bæta í sarpinn leikjum og verkefnum sem höfða til barna á yngri stigum grunnskólans.

Lágmark 3 þátttakendur.

Námskeiðið fer fram að Álafossvegi 31 í Mosfellbæ og stendur yfir í 3 klst. Ítarefni fylgir.

Möguleiki er á að panta sérsniðið námskeið sem tekur tillit til nærumhverfi skóla og aldurstig nemenda.

YNGSTA STIG

Ungir nemendur læra í gegnum reynslu og upplifanir og líkamleg hreyfing er veigamikill þáttur í lærdómsferli þeirra. Á námskeiðinu eru kenndir leikir sem auka skilning og hæfni yngstu nemenda grunnskólans í stærðfræði. 

MIÐSTIG

Í stærðfræði á miðstigi gefst nemendum tækifæri á að taka sín fyrstu spor í tölfræði og algebru. Á námskeiðinu er farið yfir ýmsar leiðir til að kveikja áhuga nemenda.

UNGLINGA STIG

Námskeið á unglingastigi er ekki í boði enn sem komið er.

Annað
Color

Brúnn

,

Rauður

,

Svartur