Steinafræði

32.500 kr.

Á námskeiðinu er farið yfir helstu steinategundir Íslands, form þeirra og fegurð.  Þátttakendur kynnast leiðum til að kveikja áhuga nemenda á margbreytileika steinaríkisins og vekja þau til vitundar um þann fjölbreytileika sem leynist við fætur þeirra. Farið verður í vettvangsferð þar sem þátttakendur fá tækifæri til að setja sig í spor nemenda og skrásetja eigin upplifanir.

Námsmarkmið:

Að vekja áhuga nemenda á fjölbreytileika náttúrfræðinnar.

Hæfniviðmið aðalnámskrár:

Að nemandi

  • geti skráð atburði og athuganir
  • tekið eftir og rætt atriði í umhverfi sínu
  • framkvæmt og útskýrt athuganir úti
  • tekið þátt í náttúrufræðilegum verkefnum og kynnt niðurstöður
  • tekið eftir og rætt atriði í umhverfi sínu
  • sýnt félögum og náttúru alúð
  • lýst reynslu sinni, athugun og upplifum af lífverum í náttúrulegu umhverfi

 

Vöruflokkur:
Nánari lýsing

Steinafræði

Á námskeiðinu er kennurum kynntar skapandi leiðir til að nýta sér upplifunar- og útinám í náttúrufræði. Þátttakendur framkvæma steinagreiningu og fá tækifæri að skoða heim steinda í náttúrulegu umhverfi.

Lágmark 3 þátttakendur.

Námskeiðið fer fram að Álafossvegi 31 í Mosfellbæ. Fyrri hluti er haldinn inni en í síðari hluta er farið í skoðunarferð.  Námskeiðið stendur yfir í 3 klst. Ítarefni fylgir.

Möguleiki er á að panta sérsniðið námskeið sem tekur tillit til nærumhverfi skóla.

Þátttakendur þurfa að hafa eftirfarandi með sér á námskeiðið:

  • Klæðnað eftir veðri
  • Vatnsbrúsa
  • Skriffæri
  • Stækkunargler
  • Segul
  • Glósubók

Námsþættir

Útinám

Nálgun þar sem reynsla, skynjun og virkni nemenda er í brennidepli.

Upplifunarnám

Hugtök náttúrufræðinnar verða að þekkingu í gegnum áþreyfanleika.

Umhverfismennt

Steindir og bergtegundir lifna við.

Náttúruspeki er hér

Bílastæði eru staðsett fyrir ofan hús. Strætisvagn númer 7 stoppar við Álafossveg.

Álafossvegi 31, 270 Mos
Gsm: 6990808